Goðsagnakennd sveitaballastemning verður endurvakin í kvöldvökuformi þegar Skítamóral býður til „Syngja með kvöldvöku“ í Aratungu laugardagskvöldið 1. ágúst.
Aratunga er eitt þeirra húsa sem skipar sérstakan sess í skemmtanasögu uppsveitanna. Nú gefst tækifæri til að upplifa þá stemningu á ný. Laugardagskvöldið 1. ágúst býður Skítamóral til „Syngja með kvöldvöku“ þar sem markmiðið er að endurvekja andrúmsloftið sem margir muna úr Aratungu, Árnesi, Borg í Grímsnesi og Njálsbúð. Þetta verða hvorki hefðbundnir tónleikar né sveitaball fram á nótt, heldur kvöld þar sem fólk kemur saman, syngur með lögunum sem það kann utan að og nýtur góðrar samveru.
„Okkur hlakkar gríðarlega til. Það er þó nokkuð síðan við spiluðum í Aratungu og við vitum að um allar uppsveitirnar verður fullt af fólki um Verslunarmannahelgina sem langar að lyfta sér aðeins á kreik án þess að vaka fram undir morgun. Þess vegna finnst okkur þessi kvöldvökuhugmynd passa einstaklega vel,“ segir Arngrímur Fannar Jónsson, gítarleikari Skítamórals. Hann segir kvöldið einnig hafa sérstaka persónulega þýðingu „Þetta er mér afskaplega kært því ég á sjálfur ættir að rekja til Reykholts í Biskupstungum og á þar fjölda ættingja og vina. Það verður því sérstaklega gaman að koma aftur í Aratungu og fylla húsið af söng og góðri stemningu.“
Kvöldvakan hefst klukkan 21:00 en húsið opnar klukkan 20:00. Aðeins verða 250 sæti í boði og verður setið við borð á meðan Skítamóral flytur öll lögin sem hafa fylgt landsmönnum í gegnum árin.
„Við erum ekki að reyna að endurskapa ballið sjálft heldur tilfinninguna. Stemninguna þegar allt húsið söng með. Þetta verður sannkölluð sveitaballastemning í kvöldvökuformi þar sem allir geta notið kvöldsins, sungið með og verið komnir heim á skynsamlegum tíma,“ segja skipuleggjendur.
Miðasala hefst mánudaginn 6. júlí klukkan 12:00 á Tix.is. Reiknað er með miklum áhuga enda eru aðeins 250 miðar í boði á þessa einstöku kvöldstund í einu þekktasta félagsheimili landsins.



