Skítamórall
Hljómsveitin Skítamórall var stofnuð árið 1989 á Selfossi af þeim Gunna Óla, Hebba, Hanna Bach og Adda Fannari þá allir 13 ára gamlir. Þessir fjórir menn mynda kjarna hljómsveitarinnar enn þann dag í dag

Í upphafi spilaði hljómsveitin aðallega þungt rokk og tók m.a. þátt í Músíktilraunum 1992 og komst þar í úrslit. Árið 1995 fór hljómsveitin að leika léttara efni og hóf að spila á skólaböllum og á almennum dansleikjum vítt og breitt um landið.
BALL Í NJÁLSBÚÐ!
Prógrammið var fjölbreytt og var einkennismerki hljómsveitarinnar lífleg sviðsframkoma og almenn spilagleði sem leiddi til þess að fljótlega varð hljómsveitin ein vinsælasta ballhljómsveit landsins.



varð fljótt
vinsæl
ballhljómsveit
Hljómsveitin hefur gefið út fimm hljóðversplötur, eina safnplötu og eina tónleikaplötu. Fjölmörg lög hljómsveitarinnar lifa góðu lífi meðal þjóðarinnar. Skítamórall fór víðan völl og spilaði mikið. Lög eftir sveitina fóru að hljóma í útvarpinu og plötur fóru að seljast.
Í byrjun árs 2009 gekk gítarleikarinn Gunnar Þór Jónsson til liðs við hljómsveitina sem síðar sama ár hélt upp á 20 ára afmæli með tónleikum á Rúbín við Öskjuhlíð.
Í kjölfarið var gefinn út tónleikadiskurinn Ennþá en á disknum fylgdi einnig DVD með öllum myndböndum hljómsveitarinnar.

Söngur & Gítar
Gunnar Ólason
Bassi & Bakraddir
Herbert Viðarsson


Gítar & bakraddir
Addi Fannar
Trommur
Hanni Bach


Gítar & Bakraddir