Laugardagskvöldið 1. ágúst ætlum við að fylla hið goðsagnakennda félagsheimili ARATUNGU af söng og sannkallaðri sveitaballastemningu. Þetta verður sannarlega sveitaball en í kvöldvökuformi þar sem allir syngja saman inn í miðnætursólina. Húsið opnar 20:00 og tónleikarnir hefjast klukkan 21:00. Allir fá sæti og aðeins 250 miðar eru í boði.
Við spilum öll uppáhaldslögin þín og allt húsið syngur með.
Miðasala hefst mánudaginn 6. júlí kl. 12:00 á Tix.is.
Við hlökkum til að sjá ykkur í Aratungu!
