.

Afmælistónleikar 8. október

2. september 2009

Hljómsveitin Skítamórall fagnar 20 ára starfsafmæli með tónleikum á Rúbín við Öskjuhlíð 8. Október kl. 20:00

Hljómsveitin Skítamórall var stofnuð af fjórum 13 ára piltum í desember 1989 og fagnar því 20 ára afmæli um þessar mundir. Hljómsveitin tók þátt í Músíktilraunum 1992 og komst þar í úrslit. Í desember 1995 var þráðurinn tekinn upp eftir nokkurra ára hlé og kom fyrsta plata sveitarinnar út sumarið 1996. Frá þeim tíma hefur hljómsveitin verið ein vinsælasta hljómsveit landsins og spilað vítt og breytt um landið. Hljómsveitin hefur gefið út 6 plötur og fjöldinn allur af lögum frá hljómsveitinni hafa orðið vinsæl og lifa með þjóðinni.

Þeir Gunnar Óla, Hanni Bach, Hebbi Viðars og Addi Fannar hafa verið kjarninn í hljómsveitinni frá upphafi en í dag er hljómsveitin einnig skipuð þeim Gunnari þór á gítar og Karli Þorvaldssyni á hljómborð og áslátt.

Á þessum afmælistónleikum, sem að mestu verða í órafmögnuðum stíl, verður öllu tjaldað til og margir góðir gestir munu leggja hljómsveitinni lið m.a. mun Sammi Jagúar stýra blásaratríói og Rolland Hartwell stjórna strengjasveit. Hljómsveitin hefur aldrei áður lagt jafn mikið í eina tónleika og hafa öll lög fengið nýja og uppfærða útsetningu, því er hér um einstakan viðburð að ræða sem enginn gamall eða nýr Skítamórals-aðdáandi má missa af.

Farið verður yfir ferilinn og leikin lög af öllum plötum sveitarinnar. Tónleikarnir verða teknir upp og gefnir út á CD og DVD fyrir jólin. Aðeins eru 180 miðar í boði á þessa einstöku tónleika.

Miðasala hefst á www.midi.is kl. 09:00 mánudaginn 7. September

Tónleikar 8. Október kl. 20:00 Húsið opnar 19:30 og miðaverð er kr. 2.500-

- .
Nafn
Netfang
Skoðun