

.
Það var mikið fjör um síðustu helgi, tókum gott start á SPOT í Kópavogi en það er nýr staður sem á eftir að koma sterkur inn í vetur. Það myndaðist góð stemming á dansgólfinu og eins og oft áður voru stúlkur í miklum meirihluta! Á laugardag var svo brunað upp á Flúðir og leikið á hinum goðsagnakennda skemmtistað Útlaganum. Árni vert á staðnum tók vel á móti okkur strákunum með kassa af bjór og flösku af jager.... ballið heppnaðist gríðarlega vel og mikil gleði í gangi. Næst er það svo Hvítahúsið Selfossi 18. Júli en Sumarstúlkan 2009 verður krýnd með pompi og prakt í hléi, hlökkum til