.

NJÁLSBÚÐ

Sveitaball ársins! Ristinn rís úr dvala... Skítamórall, Friðrik Dór, DJ Atli Skemmtanalögga og Stuðlabandið. 16. ára aldurstakmar og allir drykkir í plasti. Miðaverð kr. 2.800-
Sætaferðir frá Selfossi ( N1) kl. 21:30 frá Hellu (Olís) kl. 22:00 og frá Hvolsvelli (N1) kl. 22:15
Sjáumst í mega stuði!
www.facebook.com/skitamorall

13. ágúst 2010 | Skoðanir (0) | Bein slóð

Skítamórall í Köben

Já nú er það komið á 100% hreint! Skímóflokkurinn mun troða upp á SKARV Pilestræde 43-45 ( hliðargata út frá Strikinu) fimmtudaginn 29. apríl. Það er frídagur daginn eftir í danaveldi og mikil hefð fyrir stóru djammi á þessum degi þannig að þetta er tilvalið fyrir alla íslendinga í Kaupmannahöfn til að hittast og gera sér glaðan dag í góðu skímópartýi.
Miðaverð 150DK www.skarv.info

15. apríl 2010 | Skoðanir (0) | Bein slóð

Allt á fullu allstaðar...

Já árið hefst með nokkrum skólaböllum hér og þar... síðan heimsækjum við norðurland fljótlega og skellum okkur því næst til Gumma Gísla í Noregi og leikum á þorrablóti Íslendingafélagsins!

10. janúar 2010 | Skoðanir (0) | Bein slóð

Útgáfu frestað fram á næsta ár

Einar Bárðarson einn helsti ráðgjafi okkar í gegnum árin sagði okkur upptökurnar frá afmælistónleikunum væru ALLTOF góðar... - ákváðum þess vegna að leggja enn meiri vinnu í útgáfuna og kynna tónlistina á henni í vetur. Við vorum nú sjálfir farnir að hugsa á þá vegu og eftir að hafa heyrt það sama frá Einsa þá var þessi ákvörðun tekinn. Það verður því engin Skímóplata í jólapökkunum í ár. Hinsvegar verða tónleikarnir sýndir í heild sinni í sjónvarpi í kringum jólin. Við verðum vonandi bara með sterkari CD/DVD pakka í sumar fyrir vikið sem verður hlaðin aukaefni og skemmtilegheitum.

Hlökkum til að sjá sem flesta á NASA 21. nóvember :)

4. nóvember 2009 | Skoðanir (0) | Bein slóð

Tónleikarnir

Þökkum öllum þeim sem mættu á afmælistónleikana þetta var æðislega gaman nú er undirbúningur fyrir útgáfu hafinn á fullu!

13. október 2009 | Skoðanir (0) | Bein slóð

UPPSELT Á AFMÆLISTÓNLEIKA KL. 20:00

Já það má með sanni segja að það sé mikil stemmning fyrir afmælistónleikunum okkar næstkomandi fimmtudag. Uppselt er á tónleikana og vegna fjölda áskoranna sjáum við ekkert annað í stöðunni en að blása til aukatónleika seinna um kvöldið eða kl. 22:30! Nú er það orðið opinbert að Helgi Bjöss mun mæta á svæðið og taka lagið með okkur. Sammi Jagúar er búinn að útsetja þvílíka lúðra og Roland er byrjaður að æfa strengjasveitina - allt klárt!
Tryggið ykkur miða í tíma!
miðasala á aukatónleikana er hafin á www.midi.is

2. október 2009 | Skoðanir (0) | Bein slóð

Afmælistónleikar 8. október

Hljómsveitin Skítamórall fagnar 20 ára starfsafmæli með tónleikum á Rúbín við Öskjuhlíð 8. Október kl. 20:00

Hljómsveitin Skítamórall var stofnuð af fjórum 13 ára piltum í desember 1989 og fagnar því 20 ára afmæli um þessar mundir. Hljómsveitin tók þátt í Músíktilraunum 1992 og komst þar í úrslit. Í desember 1995 var þráðurinn tekinn upp eftir nokkurra ára hlé og kom fyrsta plata sveitarinnar út sumarið 1996. Frá þeim tíma hefur hljómsveitin verið ein vinsælasta hljómsveit landsins og spilað vítt og breytt um landið. Hljómsveitin hefur gefið út 6 plötur og fjöldinn allur af lögum frá hljómsveitinni hafa orðið vinsæl og lifa með þjóðinni.

Þeir Gunnar Óla, Hanni Bach, Hebbi Viðars og Addi Fannar hafa verið kjarninn í hljómsveitinni frá upphafi en í dag er hljómsveitin einnig skipuð þeim Gunnari þór á gítar og Karli Þorvaldssyni á hljómborð og áslátt.

Á þessum afmælistónleikum, sem að mestu verða í órafmögnuðum stíl, verður öllu tjaldað til og margir góðir gestir munu leggja hljómsveitinni lið m.a. mun Sammi Jagúar stýra blásaratríói og Rolland Hartwell stjórna strengjasveit. Hljómsveitin hefur aldrei áður lagt jafn mikið í eina tónleika og hafa öll lög fengið nýja og uppfærða útsetningu, því er hér um einstakan viðburð að ræða sem enginn gamall eða nýr Skítamórals-aðdáandi má missa af.

Farið verður yfir ferilinn og leikin lög af öllum plötum sveitarinnar. Tónleikarnir verða teknir upp og gefnir út á CD og DVD fyrir jólin. Aðeins eru 180 miðar í boði á þessa einstöku tónleika.

Miðasala hefst á www.midi.is kl. 09:00 mánudaginn 7. September

Tónleikar 8. Október kl. 20:00 Húsið opnar 19:30 og miðaverð er kr. 2.500-

2. september 2009 | Skoðanir (0) | Bein slóð

Gigg á NASA fellur niður 12. sept

Hún Inga vinkona okkar vert á NASA bókaði víst einhvern stórmerkilegan DJ frá útlandinu á dagsetninguna okkar! Við auðvitað alveg brjálaðir en erum að vinna að lausn málsins með Ingu. Finnum vonandi aðra góða dagsetningu á nasa í haust.

2. september 2009 | Skoðanir (0) | Bein slóð

Afmælistónleikar Skítamórals 8 október

Þótt ótrúlegt megi virðast eru tuttugu ár síðan hljómsveitin Skítamórall var stofnuð þó að meðlimir sveitarinnar séu rétt skriðnir yfir þrítugt. Af því tilefni efnir sveitin til tónleika sem verða teknir upp og er meiningin að gefa afraksturinn út bæði á afmælisgeisladiski og dvd-mynddisk. „Þetta á að verða svona jólapakkakandídat,“ sagði Arngrímur Fannar Haraldsson, gítarleikari hljómsveitarinnar og umboðsmaður, um þessa sjöundu skífu hljómsveitarinnar.

Þeir Skítamóralsmenn hafa undanfarið æft stíft fyrir tónleikana ásamt hinum fjölmörgu gestum sem þar munu koma fram, Samúel oft kenndur við Jagúar mun stýra blásarasveit og Roland Hartwell strengjasveit og Kristjana Stefánsdóttir djasssöngkona og Stefán Gunnlaugsson úr Buffinu munu taka undir í bakröddunum þannig að ljóst má vera að boðið verður upp á mikla Skímó-veislu í Öskjuhlíðinni.

Tónleikarnir verða haldnir á Rúbín í Öskjuhlíð.

2. september 2009 | Skoðanir (0) | Bein slóð

Gigg falla niður um helgina

Vegna nokkuð óvenjulegra ástæðna falla bæði giggin okkar niður um helgina en til stóð að troða upp á Spot föstudagskvöld og á skemmtistaðnum Batterí laugardagskvöld. Næstu gigg verða á suðurnesjum og svo stórdansleikur á NASA laugardaginn 12. september ásamt góðum gestum.

19. ágúst 2009 | Skoðanir (0) | Bein slóð

Þjóðhátíð 2009!

"geggjað" er eina orðið sem mér dettur í hug til að lýsa þessari þjóðhátíð! veðrið, stemmingin í dalnum, fólkið, hljómsveitirnar, þetta var bara alveg brilljant. Það kom góð rigningarskúr á laugardagskvöldið en stitti upp um leið og við stigum á stóra sviðið... sunnudagskvöldið var svo ótrúleg upplifun, þvílíkur fjöldi! og allir sungu með lögunum okkar í dalnum algjörlega ógleymanlegt :) Takk fyrir okkur!

3. ágúst 2009 | Skoðanir (0) | Bein slóð

Þú veist hvað ég meina mær....

Já nú er það bara dalurinn á morgun! Gunnar og Hebbi eru mættir út í eyju en við hinir tökum flug á morgun föstudag í hádeginu. Ætlum að koma okkur vel fyrir og tökum svo smá skrall í dalnum. Skítamórall er eina hljómsveitin sem leikur tvö kvöld þetta árið en bandið stígur á svið strax upp úr miðnætti á laugardagskvöld og svo verður rokkað meira á sunnudagskvöldið á eftir brekkusöngnum og Hjálmum... Tóm hamingja!

30. júlí 2009 | Skoðanir (0) | Bein slóð

Áttum frábæra helgi á Hvammstanga

Áttum frábæra helgi á Hvammstanga. Skemmtum okkur konunglega og þökkum frábærar móttökur en þetta var í fyrsta sinn sem hljómsveitin lék á Hvammstanga. Barnaskemmtunin heppnaðist gríðarlega vel og gaman að sjá hvað allir voru til í að sprella og syngja með okkur. Dansleikurinn um kvöldið heppnaðist líka vel enda bandið í góðum höndum ofurrótarans Viktors Hólm sem steig af sjálfsögðu einnig á svið og tók lagið sitt góða „þegar ykkur langar“ við gríðarlegan fögnuð viðstaddra enda er kallinn konfekt fyrir eyrað en þó ekki síst fyrir augað! Nú er það bara Þjóðhátíð verðum á stóra sviðinu laugardags og sunnudagskvöld. Eina hljómsveitin sem leikur tvö kvöld!!

27. júlí 2009 | Skoðanir (0) | Bein slóð

Hvíta húsið á Selfossi

Miðsumarsdansleikur Skítamórals ásamt úrslitunum í Sumarstúlkukeppninni 2009 laugardagskvöldið 18. júlí n.k.

Á miðnætti koma stelpurnar 10 fram í fötum frá Central tískuhús og verða svo úrslitin kynnt stuttu síðar.

Eftir krýningu verður slegið í dansleik með hljómsveitinni SKÍTAMÓRAL, en þeir munu tjalda öllu til þetta kvöldið og vera í miklu stuði !

Mættu snemma !

15. júlí 2009 | Skoðanir (0) | Bein slóð

já það var fjör...

Það var mikið fjör um síðustu helgi, tókum gott start á SPOT í Kópavogi en það er nýr staður sem á eftir að koma sterkur inn í vetur. Það myndaðist góð stemming á dansgólfinu og eins og oft áður voru stúlkur í miklum meirihluta! Á laugardag var svo brunað upp á Flúðir og leikið á hinum goðsagnakennda skemmtistað Útlaganum. Árni vert á staðnum tók vel á móti okkur strákunum með kassa af bjór og flösku af jager.... ballið heppnaðist gríðarlega vel og mikil gleði í gangi. Næst er það svo Hvítahúsið Selfossi 18. Júli en Sumarstúlkan 2009 verður krýnd með pompi og prakt í hléi, hlökkum til 

14. júlí 2009 | Skoðanir (0) | Bein slóð

Sjallinn Akureyri

Sjallinn Akureyri 16. júní :) = Þriðjudagur e. helgi HæHóJíbbýjej ...Þjóðhátíðardegi Íslendinga fagnað með trompi og dýfu! Ætli það verði dansað upp á borðum?

12. júní 2009 | Skoðanir (0) | Bein slóð

Dansleikur fellur niður.

Því miður fellur fyrirhugaður dansleikur okkar niður í Glóðinni Reykjanesbæ föstudaginn29. mars þar sem húsið hefur misst rekstrarleyfið tímabundið. Dansþyrstum íbúum Reykjanesbæjar er bent á stórdansleik okkar í íþróttahúsinu Grindavík 6. júní í staðinn. Finnum vonandi tíma og stund til að mæta seinna í Reykjanesbæ.

26. maí 2009 | Skoðanir (0) | Bein slóð

Skítamórall live á Rás2 22.maí

Já nú er það ákveðið að Skítamórall mun halda tónleika í beinni útsendingu á Rás2 föstudaginn 22.maí. Tónleikarnir verða í þættinum Poppland og hefjast kl. 11:00 Það er pláss fyrir nokkra gesti í salnum... þeir sem hafa áhuga vinsamlega sendið línu á arngrimurf@heimsnet.is

12. maí 2009 | Skoðanir (0) | Bein slóð

Nýtt lúkk og nýjar myndir.

Við tókum vefinn í gegn og settum inn fullt af nýjum myndum. Minnum einnig á ballið á Breiðinni næstu helgi á Eurovision kvöldinu. Svo erum við á Facebook og Myspace, endilega gerast vinir okkar þar. Alveg fullt að gerast, fylgist með.....!!!!

10. maí 2009 | Skoðanir (0) | Bein slóð

Skítamórall á Breiðinni Akranesi 16. maí

já loksins er komið að því að við troðum upp á Skaganum en það verður á Júróvison kvöldinu 16. maí. Hið rómaða danshús Breiðin hefur nú fengið andlitslyftingu sem um munar og er nú tilbúið til stórræða... Það verður DJ á efrihæðinni og allt vitlaust... skyldu Skagamenn kunna að dansa upp á borðum eins og forðum?

5. maí 2009 | Skoðanir (0) | Bein slóð

Nýtt lag "Sönn"

Nýja lagið okkar "Sönn" er komið í spilun á útvarpsstöðvum en einnig er hægt að kaupa lagið á www.tonlist.is og hlusta á www.myspace.com/skitamorall

27. apríl 2009 | Skoðanir (0) | Bein slóð

Alltaf eitthvað að gerast...

Hæ endilega fylgist með á www.myspace.com/skitamorall þar eru alltaf nýjustu upplýsingar. Eins er tilvalið að gerast vinur okkar á Facebook,

Nánari upplýsingar og bókanir: arngrimurh@vodafone.is / gsm 6699643

27. apríl 2009 | Skoðanir (0) | Bein slóð

Skítamórall á þjóðhátíð 2009

Skítamórall mun leika á stóra sviðinu á þjóðhátíð í Eyjum 2009 !

10. júní 2008 | Skoðanir (0) | Bein slóð

Myspace

Kíkið endilega á www.myspace.com/skitamorall og gerist vinir okkar!

29. apríl 2008 | Skoðanir (0) | Bein slóð

Gleðilegt nýtt ár

Jæja þá er komið nýtt ár. Okkur langar að þakka fyrir árið sem var að líða og óska ykkur lukku á nýju ári. Við erum komnir í frí. Hanni er að flytja erlendis og eigum við eftir að sakna hans mikið. Bless í bili.

1. janúar 2007 | Skoðanir (0) | Bein slóð

Tónleikar fyrir krabbameinssjúk börn

Það er orðinn árviss viðburður að framvarðasveit íslenskrar popptónlistar komi saman við áramót í Háskólabíói við Hagatorg og stilli saman strengi til styrktar SKB. Árið í ár er engin undantekning og hefur dagskráin sjaldan eða aldrei verið eins glæsileg. Á undanförnum árum hafa yfir 14 milljónir króna safnast á þessum tónleikum, og nú er markmiðið að sú upphæð hækki í a.m.k.
sextán milljónir króna. Þess má geta að hljómsveitin Sálin hans Jóns míns sem kemur fram á tónleikunum kemur nú fram á þessum tónleikum í áttunda sinn. Þannig hefur sveitin komið fram öll árin sem þessir tónleikar hafa verið haldnir.

Að gefnu tilefni er rétt að láta það fylgja að á tónleikunum í gegnum tíðina hefur komið fram rjómi þekktustu tónlistarmanna landsins á hverjum tíma og hafa allir þeir sem komið hafa að tónleikunum gefið vinnu sína til fulls. Háskólabíó gefið húsnæðið. Um leið hafa allir tæknimenn og aðrir starfsmenn tónleikanna gefið vinnu sína. Öll fyrirtæki sem að verkefninu hafa komið hafa líka gefið alla sína vinnu. Að sjálfssögðu er engin breyting þar á.

"Þetta er í áttunda árið sem við förum í þetta tónleikahald. Þetta er bara partur af hátíðar undirbúningnum hjá mér og mér finnst þetta bara ómissandi. Það er með eindæmum hvað íslenskt tónlistarfólk er örlátt á tíma sinn og hæfileika og ég verð að segja að þetta árið eru listi flytjenda alveg óvenju glæsilegur. Ég er mikið stoltur yfir þessu verkefni og þakklátur öll þeim sem lætur þetta verða að veruleika á hverju ári með mér" sagði Einar Bárðarson sem nú skipuleggur þessa tónleika áttunda árið í röð.

Tónleikarnir fara sem fyrr segir fram í Háskólabíói fimmtudagskvöldið 28. desember og hefjast stundvíslega kl. 18:00

13. desember 2006 | Skoðanir (0) | Bein slóð

Eitt stórt partý er rétta orðið

Það var massadansleikur í gær, bandið var í miklum ham og lék á alls oddi. Síðan þegar að leið á nóttina komu gestir upp á svið eins og oft áður. Fyrstan má nefna Einar Ágúst sem tók 2 lög með okkur eins og áður og var vel tekið af gestum enda mikil maður þar á ferð. Næstur kom Guðmundur Jónsson gítarleikari Sálarinnar og var talið í Sódómu, til að styðja við þann söng kom Jón Jósep eða Jónsi í Svörtum fötum og söng af miklum krafti, menn bættu við einu lagi þar sem þessar stórstjörnur voru komnar á svið og setti Jónsi á sig hattinn hans Adda en var ekki jafn fallegur og Addi með hann. Já þetta var eitt gott stórt Skímó partý eins og þau gerast best. Okkur langar að þakka fyrir okkur og ætlum við nú að leggjast í dvala og hlaða batterýin og finn nýja orku flæða um líkamann. Því segjum við Stopp..!!!

Kveðja Skímó.

27. nóvember 2006 | Skoðanir (0) | Bein slóð

78 myndir komar inn..

..og mikið meira á leiðinni. Tjékkið á myndasíðunni okkar...!!!!

26. nóvember 2006 | Skoðanir (0) | Bein slóð

Ballið var magnað...

...og það var tekið fullt af myndum, bæði af strákunum og svo gestum á ballinu. Það er verið að flokka þér, og ættu vonandi að koma eitthvað inn í kvöld...þannig að fylgist þið með...

26. nóvember 2006 | Skoðanir (0) | Bein slóð

Stopp komið í spilun.

Nýja lagið “Stopp” er loksins farið að hljóma á öllum helstu útvarpstöðvum landsins. Okkur sýnist landinn vera að taka nokkuð vel í lagið og erum við mjög glaðir og ánægðir með það.

En það styttist nú óðum í annan endann á hljómleikahaldi Skítamórals um hríð. Við eigum einungis eftir að spila á Nasa þann 25. nóvember nk., þannig að það er eins gott að bóka daginn og hefja undirbúninginn fyrir frábært djamm. Munum taka alla helstu slagarana okkar og halda uppi funheitu fjöri langt langt fram á nótt.

Love,

Skítamórallsmenn

16. nóvember 2006 | Skoðanir (0) | Bein slóð

Nýja lagið..

Nú gefst fólki kostur á að heyra brot af nýja laginu með Skítamóral "STOPP" og undir því eru myndir sem voru teknar af hljómsveitinni í Hemma Gunn og frá íslandsmeistaramótinu í Fittness. Myndirnar eru teknar af Sigríði Þóru Ásgeirsdóttur. Þú finnur það undir myndböndum..

10. nóvember 2006 | Skoðanir (0) | Bein slóð

Akureyri á laugardag.

Við mætum norður á laugardaginn og verðum í fanta stuði. Addi kemur með hattinn og þá fara allir í stuð. Við ætlum að hita mannskapinn upp á Café Amor og taka þar nokkur vel valin lög, síðan er það sjallinn um kvöldið. Nýtt lag verður spilað sem heitir Stopp og var frumflutt hjá Hemma Gunn um daginn. Við viljum vekja athygli á því að bandið er að fara í frí um áramótin, í u.þ.b. átta mánuði. Já það er nóg að gera og hlakkar okkur til að sjá ykkur.

Kveðja

Skítamóralsmenn.

8. nóvember 2006 | Skoðanir (0) | Bein slóð

Í sjöunda himni...

Við vorum hjá Hemma Gunn í gærkvöldi, áður en við spiluðum á frábæru balli í Kvennó, en í þættinum frumfluttum við nýja lagið okkar, sem heitir "Stopp".
Einnig er búið að setja inn nýjar myndir sem hinn snjalli ljósmyndari, Þóra Ásgeirsdóttir tók.

3. nóvember 2006 | Skoðanir (0) | Bein slóð

Nýjar myndir á vefnum..

..sem voru teknar á ballinu á Nasa, þann 9 september.

2. nóvember 2006 | Skoðanir (0) | Bein slóð

Ballið var magnað..

Það var mikið stuð á Nasa um helgina, og ballið tókst með ágætum. Óvænt uppákoma átti sér hins vegar stað, því Einar Ágúst birtist óvænt og tók 2 lög með okkur , Hey þú og Opna augun, þetta var ekkert planað og kom okkur jafn mikið á óvart og öðrum gestum NASA sem höfðu gaman að uppátækinu. Það kemur nú oft fyrir að söngvarar "gesti" eins og það er kallað, þegar þeir troða upp óvænt með annari hljómsveit. Hjá okkur hafa ýmsir "gestað" í gegnum tíðina t.d. Helgi Björns, Friðrik Ómar, Stebbi Hilmars, Andrea Gylfa, Regína Ósk og Guðrún Lísa úr Ísafold. Það var hinsvegar nokkuð sérstakt að fá "gest" sem er fyrrum meðlimur bandsins. Einar hefur að undanförnu verið að taka sig í gegn og gengur að sögn bara nokkuð vel í því, sem er mjög jákvætt. Hann fékk góðar viðtökur frá gestum NASA og kvöldið varð eftirminnilegra fyrir vikið. Einar er þó ekkert á leiðinni inn í bandið aftur, heldur var þetta bara svona óvænt sem allir höfðu gaman að.

30. október 2006 | Skoðanir (0) | Bein slóð

Nýtt lag...

Á næstu dögum kemur út nýtt lag með Skítamóral. Upptökur hófust í síðustu viku en stefnt er að því að frumflytja lagið í sjónvarpi og á Ice fitness keppninni sem haldin verður síðar í mánuðinum. Stórvinur okkar Vignir Snær Vigfússon söngvari og lagahöfundur hljómsveitarinnar Írafár og hljómsveitarstjóri í nýja sjónvarpsþætti Hemma Gunn samdi lagið sem er í sönnum rokkanda Skítamórals. Hægt verður að nálgast hljóðbút af laginu hér á vefsíðunni í næstu viku. Við bættum einnig nokkrum myndum í albúmið úr stúdíóinu..

9. október 2006 | Skoðanir (0) | Bein slóð

Þakkir

okkur langar að þakka Valdimar og Ægi fyrir frábæra hönnun á nýjum vef. Nú fer að styttast í annan enda hjá bandinu þar sem ákveðið er að fara í frí um áramót. Enda bandið búið að vera spila mikið að undanförnu. Takk fyrir í bili kveðja Strákarnir í Skítamórall.

8. október 2006 | Skoðanir (0) | Bein slóð

Laugardaginn 28 nóvember..

..verður Íslandsmót Icefitness 2006 haldið í Laugardalshöll og spilar Skítamórall þar og svo um kvöldið verður stormað niður á NASA og þar verður allt sett í botn á þvílíku balli....en það verður nánar auglýst síðar.

4. október 2006 | Skoðanir (0) | Bein slóð

Nú er búið að uppfæra hljómplötur

Ef það er smellt á tengilinn "Plötur" hér til hægri, getið þið hlustað á brot úr öllum lögum Skítamórals. Einnig er hægt að fara beint inn á www.tonlist.is og skoða plötuna betur og verslað alveg grimmt. Verið er að plana stærri og merkilegri hluti, s.s. algjöra byltingu á íslenskum hljómsveitavefum, en það kemur í ljós seinna....

2. október 2006 | Skoðanir (0) | Bein slóð

Skítamórall.is er í vinnslu

Verið er að taka vefinn í gegn, og það er verið að setja inn fullt af nýju efni, og kemur það inn á allra næstu dögum. En fréttir og gestabókin er virk til að byrja með og svo dettur hitt inn, koll af kolli.

26. september 2006 | Skoðanir (0) | Bein slóð

Fullt að ske hjá Skítamóral.

Og er þar helst að nefna að sveitin er á leiðinni í hljóðver að taka upp nýtt lag, og svo eru myndatökur fyrir vefinn og auglýsingar.

26. september 2006 | Skoðanir (0) | Bein slóð